Spurt og svarað:
Hvernig er greitt?
Þess er krafist að borgað sé staðfestingargjald (20% af leiguupphæð eða $500) þegar húsnæði er tekið frá. Þegar bókun er staðfest þarf að borga alla upphæð að minnsta kosti tveimur mánuðum fyrir leigu. Ef tekið er frá húsnæði innan tveggja mánaða frá leigudegi þarf að borga aukagreiðslu (50$).
Ef heildarupphæð er ekki greidd fyrir tveggja mánaða frestinn mun bókunin á húsinu/íbúðinni opnast aftur fyrir leigu á þeim tíma sem það var tekið frá.
3% kreditkortagjald leggst á heildarupphæð. Bandarískir bankar taka 3% gjald þegar borgað er með kreditkorti.
Hvað ef ég þarf að afbóka?
Ef þú þarft að hætta við bókun þarftu að senda póst strax á [email protected]. Fyrirtækin sem Kissimmeehús skiptir við eru með mismunandi reglur varðandi afbókanir. Hinsvegar eru afbóknarreglur flestra húsa/íbúða svohljóðandi:
Ef hætt er við bókun lengur en 8 vikur fyrir bókun er $200 afbókunargjald.
Ef hætt er við bókun 6-8 vikur fyrir bókun er afbókunargjald 50% af heildarupphæð.
Ef hætt er við bókun 4-6 vikum fyrir bókun er afbókunargjald 75% af heildarupphæð.
Ef hætt er við bókun 0-4 vikum fyrir bókun er afbókunargjald 100% af heildarupphæð.
Einnig áskila fyrirtækin sér rétt á $30 "administration" gjalds þegar afbókun á sér stað.
Af hverju eru engin verð?
Verð á húsum/íbúðum er mjög mismunandi eftir tímabilum (low, mid, high og peak tímabil). Einnig er mismunandi eftir sýslum hvað skatturinn er mikill.
Low tímabilið er á haustin þ.e. sep-des, janúar og maí.
Mid tímabilið er feb-páska
High tímabilið er júní-enda ágúst
Peak tímabilið eru þakkagjörðarvikan (thanksgiving), jól/áramót og páskar.
Gott er að fá grófar dagsetningar ef send er fyrirspurn til að komast að því hvort hús séu laus.
Hver á þessi hús/íbúðir?
Húsnæðin sem Kissimmeehús er með í boði eru í eigu breta en í umsjá fasteignafyrirtækis í Orlando. Mikið er lagt í að halda húsnæðunum í góðu ástandi. Ef eitthvað kemur uppá er hægt að hringja í starfsmann fyrirtækisins sem kemur til hjálpar innan skamms tíma.
Öll húsin eru með kóða sem breytist eftir hverja leigu. Leigjendur fá kóðann nokkrum dögum fyrir gistingu.
Hvern get ég haft samband við ef það koma upp vandræði?
Öll húsnæðin er í umsjá sama aðila sem er með aðsetur stutta stund frá. Hægt er að hringja í hann hvenær sem er. Símanúmer hans og aðrar upplýsingar eru í möppu sem er staðsett í stofu hvers húsnæðis.
Eru húsin á síðunni þau einu sem Kissimmee hús býður upp á?
Kissimmee hús var að gera samning fyrir nokkrum mánuðum við eitt stærsta og virtasta leigufyrirtæki í Florida. Er það fyrirtæki með frá 2ja herbergja íbúðum til 7 herbergja lúxus húsa. Fór fjöldi leigueigna úr 40 í ríflega 500.
Því erum við með mun fleiri hús/íbúðir í boði en það sem er hér á vefsíðu okkar. Ef þú sérð ekki hús/íbúð á vefsíðuna sem þér hugnast, endilega sendu okkur póst og við munum gera okkar besta til að finna eign sem hentar þér.
Hvar eru húsnæðin staðsett?
Öll hús og íbúðir eru í nokkrum hverfum rétt hjá vegi 192 í Kissimmee. Þau eru einungis 5-15 mínútur frá Disney. Hverfið er mjög hljóðlátt og stutt í alla þjónustu.
Það tekur aðeins 5 mínútur að keyra til Disney.
Innan við 5 mínútur á Orange Lake Golf Club og Mystic Dunes Golf Club.
Einungis eru 15 mínútur í Orlando Premium Outlet við Vineland Road og 20 mínútur í Orlando Premium Outlet við International Drive.
Florida Mall og Mall at Millenia eru 20-25 mínútna fjarlægð.
Hvenær er "check in" og "check out"
Check-in er kl. 16
Check out er kl. 10
Aukagreiðslur:
Flest húsin hjá Kissimmeehús eru ekki með innifalda hitun á laug. Kostar hitun 30$ á dag. Ef gist er í t.d. tvær vikur er yfirleitt nóg að hafa laugina upphitaða fyrstu vikuna og heldur hitinn sér ágætlega þá seinni.
Grill er hjá flestum húsum. Fyrir 25$ er hægt að fá grillið með fullan tank af gasi.
Hægt er að kaupa tryggingu varðandi skemmdir á hlutum í húsunum og íbúðum. Kostar tryggingin ca. $50-100 (fer eftir húsi) og mun koma í veg fyrir að leigjandi þurfi að greiða fyrir skemmdir upp að $1,000. Við hvetjum hinsvegar alla leigjendur til að fara vel með húsin enda eign annarra.
Hvaða fyrirtæki á Kissimmee hús?
Kissimmee hús er í eigu Faktor Ehf (kt. 511212-0650).
Eigandi fyrirtækisins er Þórður Rafn Gissurarson.
Starfsmenn fyrirtækisins eru tveir.
Kissimmee hús er í samstarfi við þrjú leigufyrirtæki á Orlando svæðinu.
Af hverju var Kissimmee hús stofnað?
Margir Íslendingar leggja leið sína til Orlando ár hvert til að sleikja sólina yfir veturinn á meðan myrkrið og kuldinn herjar á Ísland. Flestir vilja leigja sér hús eða íbúð í stað þess að vera á hóteli. Lítið framboð hefur verið á húsum fyrir Íslendinga og því var ákveðið að búa til Kissimmee hús vefsíðuna til að auka framboð á leiguhúsnæði auk þess að hafa það á sem besta verði.
Kissimmee hús er einungis tengiliður milli viðskiptavina og þeirra leigufyrirtækja erlendis sem leigja húsnæðin.
Hver er eigandinn?
Þórður Rafn Gissurarson útskrifaðist sem viðskiptafræðingur með áherslu á alþjóðleg viðskipti frá St. Andrews Presbyterian College árið 2010. Eftir útskrift gerðist Þórður atvinnukylfingur og vinnur við það ásamt því að eiga Kissimmee hús.